Lýðræði er vandmeðfarið og krefst ábyrgðar. Ef lýðræði á að þróast á Íslandi, þá þurfa allir Íslendingar að taka þátt í þeirri þróun. Stjórnmál er ekki einhver einkaklúbbur fyrir þá sem hafa þrætuepli að lifibrauði, heldur eru þau hagsmunamál allra Íslendinga, þar sem hver og einn verður að taka ábyrgð.