Ísland er land þitt..............

Sem réttmætur eyjabúi á Íslandi, þá hef ég þurft að horfa upp á ekki bara eitt landráð, heldur tvö! Fyrst stela ‚athafnamenn“ fjármunum Íslands og síðan eru leifarnar seldar sem hrak til Evrópusambandsins. Þvílík svik.

Ég á ekki til stakt orð yfir þeirri ósvífni og óvirðingu sem íslenskri alþjóð hefur verið sýnd! Af öllum, þá er sú ósvífni borin fram af Alþingi Íslendinga.

Ísland er eitt ríkasta land heims! Þó svo að svikulir ‚athafnamenn‘ hafi haft fé af landmönnum, þá er langt í frá að landið sé á barmi ölmusu. Svo langt í frá.  

Íslendingar bjuggu í moldarkofum, torfbæjum og hellum langt fram yfir 1900. Margir ‚betri þegnar‘ bjuggu þó betur og standa byggingaverk margra góðra manna okkur enn fyrir sjónum. Það var í raun ekki fyrr en að Heimsstyrjaldirnar kynntu ‚beinharða peninga‘ fyrir landsmönnum og Íslandingar almennt kynntust því ‚góðæri‘ sem ófriður hafði í för með sér.

Skortur á hefð og skortur á virðingu er hugsanlega ólukkusteinn. Skortur á virðingu er skortur á skynseminni sem fylgir því að skilja ekki virðingu. Ef þú virðir ekki hættuna sem eiturlyf geta fært þér, þá ertu búinn að vera. Ef þú virðir ekki hættuna sem fylgir því að taka of mikil lán, þá ertu búinn að vera. Ef þú virðir ekki hætturnar sem leynast á vinnustaðnum, þá ertu búinnn að vera. Ef þú sýnir fólki ekki virðingu, jah, er það ekki bara að líkur sækir líkan heim. Virðing er kannski bara það að vera vel upplýstur um afleiðingar gjörða sinna.

Hver er sökudólgurinn að ofurlánum? Who is the pusher? Það ætti einfaldlega að vera skrifuð lög að ef lán fer yfir veðhæfni, þá á að afskrifa allar upphæðir umfram veð. Því auðvitað getur bankinn gert mistök, og það á jafnt yfir alla að ganga.

Auðug fiskimið landsins munu halda áfram að bera mat á borð landsmanna, á meðan fiskurinn er búinn hjá Evrópusambandinu (nú ætla þeir að ræna okkur og geta ekki beðið).

Vatnsafl og jarðorka landsins mun halda landinu gangandi í áratugi með þekkingu okkar og asíubúa, en nánast engri frá öðrum evrópubúum.

Fólk er orðið malbikinu að bráð og sér ekki náttúruna og auðlindirnar í kringum sig. Fátækt hugans er engin afsökun fyrir sölu landsins til erlendra aðila.

Hvergi nokkurs staðar á jörðinni er til betra drykkjarvatn en á Íslandi (þó sums staðar finnist jafngott).

Ekkert land í heiminum á eins mikið lifandi og gefandi hafsvæði umhverfis sig. Einungis hafsvæðið gerir Ísland að einu af stærstu löndum Evrópu og fiskimiðin eru ómetanleg í krónum eða trilljörðum talið. Svo ekki sé talað um hvalamiðin. Evrópusambandinu klæjar í að ná yfirráðum yfir þessum auðlindum, og Alþingi gefur það á silfurfati. SVEI YKKUR. Þó svo að olía finnist, er þá yrði það bara aukabúskapur.

Ekkert land í heiminum á eins mikla möguleika á því að sýna fordæmi í sjálfbærni í harðbýlu landi eins og Ísland er, og það á öllum vígstöðvum og er þar fyrst að nefna að það er enginn her á íslandi, einungis hjálparsveitir.  HJÁLPARSVEIT ekki dauðasveit.

Allt það sem við höfum að bera til að færa Ameríku, Asíu og Afríku í t.d. jarðhitanýtingu er ómælanlegt.

Ísland er evrópskt land með blandaða menningu Evrópu, Ameríku, Asíu, Afríku og Suður-Ameríku. Sjálfstæði Íslands er sérstaklega aðlaðandi og í raun aðdáunarvert í öllu þessu ósjálfstæðinu sem ríkir innan Evrópu. Það er kostnaður við slíkt, en uppskeran er margföld.

Ísland er Ísland og það þarf auðmýkt að sýna móðurjörðinni umhyggju. Umhyggju, sjálfstæði, og sjálfsábyrgð er öllu hent út um glugga velunnara Evrópusambandsins, sambandi þjóða sem gátu ekki einu sinni komið fram að heiðarleika þegar efnahagur Íslands hrundi.

Hvernig líður Íslendingum í dag? Íslendingar vita að þegar svipaðar aðstæður koma upp hjá einhverri þjóð, mun sama sagan endurtaka sig, og sú þjóð mun verða þjökuð og væntanlega gleypt eins og Ísland.

Svei ykkur landráðamönnum. Ísland er Ísland en ekki pólitískt bitbein. Óþverrar landsins selja sig ódýrar en hundasúrur.

Það er eins og allir stjónmálamenn séu sammála um það afsala íslensku þjóðinni sjálfræði! Enginn maður/kona með réttu ráði myndi gera slíkt, og því er spurningin hvað veldur því að alþingismenn kjósa þessa leið?


Hverju má breyta í næstu kosningum - Vinnulisti

Þessi grein er enn í vinnslu, en þið fáið samt leyfi til að kíkja innihaldið, því þetta varðar okkur öll.....

Almenningur er búinn að missa sjónar af grundvallaratriðum samfélagsins. Það er verið að hnýtast um pólitíska flokka og stefnu þeirra sem komin er út í eiginhagsmunapólitík, í stað þess að huga að grundvelli sem er sameiginlegur okkur öllum.

Það eru mörg mál sem þarf að taka fyrir á Alþingi en er ekki gert vegna hagsmunapólitíkur. Menn eru með málþóf og bryddað er upp á málefni sem eru að þvælast fyrir mönnum, hálfköruð, unnin með hangandi hendi, endalaust er verið að staga í gatasigti, í stað þess grunnurinn sé lagaður og að tekið sé kröftuglega á málefnum, sem einfaldar alla umfjöllun og meðferð.

Ísland er lítið land sem hægt er að reka á mjög hagkvæman en öflugan hátt. Það eru margar lagalegar og siðferðislegar skyldur sem Ríkisstjórn þarf að uppfylla, en siðblinda og vanhæfi núverandi Ríkisstjórnar er með eindæmum. 

Það þarf að laga grunn íslenskrar samfélagsbyggingar og lýðræðis, til að skapa festu og ró til uppbyggingar. Það þarf að taka á núverandi krísu af alefli en það þarf einnig heilbrigðan grunn til að byggja heilbrigt.

Grunnatriði 1

Fyrst af öllu þarf að stofna Samtök Lýðræðisins. Samkvæmt 74. gr. Stjórnarskrárinnar getur hver sem er tekið það hlutverk að sér. Stefna þeirra samtaka er að endurbyggja lýðræðisríkið Ísland. Málefnin eru öll málefni Íslands. Félagar Samtaka Lýðræðisins er fólk sem hefur starfsreynslu og þekkingu til að leggja fram tillögur á þingi um úrbætur samkvæmt reynslu þeirra og dómgreind. Það er hvatt til að Íslendingar sendi inn tillögur að persónum sem þeir telja geta lagt á vogarskálarnar í uppbyggingu íslensks lýðræðis og framtíðar. Þetta fók er því miklu hæfara á Alþingi heldur en þeir atvinnuþæfarar sem hafa gert sig heimkomna á þeirri samkundu.

Grunnatriði 2

-- Til að leggja grunn að sameiginlegri framtíð allra Íslendinga, þá þarf að bæta inn í 40. gr. og 49. gr. í Stjórnarskrá Íslands skv. Grunnatriði 3 hér að neðan.

-- Breyta þarf lögum um fjármálastofnanir. Þar ættu lög að tryggja að allir bankar starfandi á Íslenskum bankamarkaði gætu tryggt allar innistæður á reikningum þeirra. Ekki einungis að tryggja einhverja lágmarksupphæð. Tryggingin gæti verið veitt af Ríkissjóði, en því fylgdi ábyrgð og eftirlit sem hefur skort algerlega hingað til. Aðhald.

-- Ábyrgð valdhafa og stjórnaraðila verði aukin til að opna umræður um öll málefni og tryggja að sem flestir komi að ákvarðanatöku í öllum málaflokkum.

-- Aðhald Ráðherra: T.d. gæti stjórnarandstaðan 2-3svar á ári kosið 3-5 manna nefnd sem væri heimilt að fara fram á opinn fund með hvaða ráðherra sem er og fara í saumana á öllum málum og ákvarðantöku sem viðkomandi ráðherra hefur undir sínu valdsviði. En fyrst þyrfti að breyta 49. gr. Stjórnarskrár Íslands svo sannmælis sé gætt.

Grunnatriði 3: Verndun Stjórnarskrár Íslands I

 #1 Auðlindir þjóðarinnar: 40. gr. Stjórnarskrár Íslands hljóðar:

40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.

-- Hérna eru einungis nefndar fasteignir en það vantar inn auðlindir Íslands, þjóðgarðar, fiskveiðiheimildir, jarðvarma og vatnsföll. Ég efast að auðlindir sé hægt að flokka sem fasteign eins og fasteign er skýrð í lögum. Þessu þarf að kippa í liðinn.

-- Hér mætti einnig bæta inn nokkrum grunn-þjónustuþáttum er varðar öryggi og lífkjör landsmanna allra. Grunnþjónustur eins og hitaveitur, rafmagnsveitur, netveitur og aðra þætti grunnþjónustu þarf að skoða vel til að tryggja að öryggi, verð og þjónustustig sé jafnt til allra landsmanna. Hér er mikilvægt að þessar þjónustur séu í eigu almennings, þar sem verðlagning miðast við að sjálfbærar einingar sem er viðhaldið og þróaðar, en ekki að fjáfestar geti tekið út "arð" eða hagnað, sem einungis er til að hækka verð og lækka lífskjör þjóðarinnar. Þessar sjálfbæru einingar mættu selja sína þekkingu og nýta til að auka verðmæti einingarinnar, en aldrei mættu þær nýta fjármagn einingarinnar til slíks né á nokkurn hátt skuldbinda sig eða hefta sig fjárhagslega í slíkum tilgangi. Þekking eru verðmæti sem hægt væri að setja í sjálfstæð félög, sem að öðru leyti væru ótengd einingunni.

-- Þegar þessar breytingar á Stjórnarskránni hafa verið framkvæmdar, þá þarf jafnframt að vernda þessar breytingar gegn apaköttum á þingi og bæta við að "40. gr. Stjórnarskrár Íslands er einungis hægt að breyta með þjóðaratkvæðagreiðslu íslensku þjóðarinnar."

 

#2 Ábyrgð stjórnarmanna: 49. gr. Stjórnarskrár Íslands hljóðar:

49. gr. [Meðan Alþingi er að störfum má ekki setja neinn alþingismann í gæsluvarðhald eða höfða mál á móti honum án samþykkis þingsins nema hann sé staðinn að glæp.
Enginn alþingismaður verður krafinn reikningsskapar utan þings fyrir það sem hann hefur sagt í þinginu nema Alþingi leyfi.]1)
   1)L. 56/1991, 18. gr. 

-- Hér þarf að breyta ábyrgð. Þessi klásúla verndar og leyfir þingmönnum að steypa, ljúga og afvegaleiða almenning og tilheyrir hvergi í raunverulegu lýðræði. Klásúlan þjónar landsmönnum á engan hátt., heldur býr til óvissu. Ábyrgð Ríkisstjórnar ætti að vera algerlega hliðstæð ábyrgð stjórnarmanna fyrirtækja. Ábyrgð stjórnenda þarf að taka til alvarlegrar endurskoðunar til að auka skilvirkni og tiltrú almennings á "kerfinu" sem á að þjóna landmönnum. Að sama skapi þarf almenningur að gera sér grein fyrir því að lýðræðinu fylgir ábyrgð og þarf að taka þátt í þeirri ábyrgð.

Grunnatriði 4: Verndun Stjórnarskrár Íslands II

Það þarf að standa vörð um Stjórnarskrá Íslands. Lögbrot mætti kalla lögbrot, en brot gegn Stjórnarskrá Íslands ætti að varða mun alvarlegri refsingum. Í Stjórnarskránni eru tíunduð grundvallaratriði Íslensks samfélags og þeim þarf að fylgja af festu svo grunnstoðir lýðveldisins haldi. Virðingu við Sjórnarskrána verður að viðhalda, að öðrum kosti fer allt endalega á kollinn. Brot gegn grundvallarsamningi íslenska lýðveldisins grefur undan stoðum samfélagsins og er ólíðandi.

Stjórnarskrá Íslendinga var samin með það fyrir augum að Íslendingar yrðu "frjálsir og óháðir þegnar Lýðveldisins Íslands". Það skýtur því skökku að hægt og bítandi eru Íslendingar að verða fórnarlömb vanrækslu íslenskra valdhafa í eigin landi. Nú er svo komið að búið er að byggja upp iðnað á Íslandi sem byggir á glæpastarfsemi. Þvert á greinar Íslensku Stjórnarskrárinnar. Þá er slík glæpastarfsemi látin nærri afskiptalaus og refsilaus. Þjófnaður á hangilæri hefur álíka refsiramma og nauðgun. Nauðgun er þar af leiðandi orðið beitt vopn sem margir hafa nýtt sér í gegnum tíðina, en þar sem fórnarlömb nauðgana ná sér að jafnaði aldrei aftur í lífinu, þá þarf að gera viðeigandi lagabreytingar sem hæfa betur sem refsing við brotinu.

Húsbrot er andleg nauðgun og brýtur einnig gegn ákvæðum Stjórnarskrárinnar og þarf að taka miklu harðar á þeim refsiramma.

Sama má segja um frelsissviptingu þegar fólki er haldið inni, hvort sem er á heimili sínu eða annarra, numið á brott eða hvers kyns önnur frelsissvipting, á að taka sérstaklega hart á.

Ofbeldi, ógnanir og hótanir eiga heldur ekki heima í neinu siðmenntuðu þjóðfélagi. Það má einnig flokka sem andlegt ofbeldi, og veldur oft varanlegum skaða á fórnarlambinu. Því ætti refsiramminn einnig vera því samsvarandi. Bara grunur um handrukkun ætti að fylgja sjálfkrafa nálgunarbann, því ef engin er handrukkunin, þá ætti það ekki að breyta neinu fyrir þann sem fær á sig slíkt bann fyrr en hann brýtur það. Sama ætti að gilda um ofbeldi og hótanir. Nálgunarbann ætti að nota í miklu ríkara mæli og hafa sérstaklega ströng viðurlög, því það er einföld fyrirbyggjandi aðgerð. Afleiðingar fyrir brotamann að brjóta slíkt bann væru miklu meiri, því þá væri verið að nota 71. gr. Stjórnarskrár Íslands sem á að tryggja alla landsmenn með ströngum refsiramma.

Ef fólk hefði betur áttað sig á að virða Stjórnarskrána, virða friðhelgi einkalífsins, virða ábyrgðina sem fylgir frelsinu, virða afleiðingar af því að vera óábyrgur, virða lýðræðið og virða Stjórnarskrána, þá væri Íslenskt samfélag væntanlega á allt öðrum level en það er í dag.

 

Úr Stjórnarskrá Íslands:

67. gr. [Engan má svipta frelsi......

71. gr. [Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu................

72. gr. [Eignarrétturinn er friðhelgur............


Norðmenn á flótta

Hvernig eru Íslendingar að terrorisera vinaþjóðir?

Íslendingar eru nýbúnir að byggja stærsta fjármála-brauðfóta-fyrirtæki heimsins (miðað við þjóðarframleiðslu) sem fór til fjandans og er að taka Ísland með sér.

Svo eru sömu aðilar að biðla til Norðmanna að fá að nota þeirra mynt, því vantrúin er orðin svo gígantísk á íslenska krónu. Norðmenn stökkva á flótta, því þeir búast auðvitað að fáráðlingarnir sem stjórna peningamálum Íslands séu á höttunum eftir “öðru tækifæri” til að byggja og rústa peningakerfum heimsins.

Íslenskir ráðamenn eru terroristar með réttu. Darling og Brown voru í fullum rétti að beita hryðjuverkalögum, séð í ljósi þess að Seðlabankinn hafði þegar í apríl “varað bretana við” að íslenskir ráðamenn réðu ekki við neitt, kunnu ekkert, reyndu ekkert og bara vörpuðu boltanum yfir til bretanna. Stikk frí. Aular.

Kínverjar bundu gengi sitt við dollar í mörg ár, en genginu er nú leyft að flökta um 5% að mig minnir. Kína er ekki eina landið sem bindur sitt gengi á þennan máta. Að auki bönnuðu kínverjar öll erlend viðskipti með sinn gjaldeyri og held ég að það hafi ekkert breyttst til dagsins í dag. Ísland gæti auðveldlega hengt sig fast í dollarann, á föstu gengi í 5-8 ár. Þá væri hægt að einbeita sér að lausn vandamála (eða Alþingi eins of venjulega: bara finna einhvern annan til að leysa vandamálin) og geymt alla umræðu um bæði ESB og gjaldmiðlabreytingu á meðan versta niðursveiflan gengur yfir. Það eru ekki margir valmöguleikar í stöðunni og sérfræðingar hafa alveg ágæta hugmynd um "verðleysisgengi" krónunnar.

En ákveðnar og stefnumarkandi aðgerða má ekki vænta í langan tíma með núverandi stjórn.

http://www.visir.is/article/20081031/FRETTIR01/236420661/-1


Ísland ótrúverðugt með núverandi ráðamönnum

Ráðamenn íslensku þjóðarinnar hafa komið Íslandi í háskalega stöðu. Landið er nærri gjaldþrota, rúið áliti og trausti vegna framúrskarandi lélegrar forystu og stjórnleysis. Nú þarf ábyrga til að taka við og þrífa upp mykjuna sem himpigimpin skilja eftir sig.

Núverandi aðstæður á Íslandi gætu hvergi annars staðar komið upp í heiminum (nema svo óheppilega vildi til að davíð væri þar). Til að endurvinna traust alþjóða almennings og viðskiptalífs, þá er málið einfalt: Það þarf að koma Seðlabankastjórn frá og sýna bæði landsmönnum og heimsbyggðinni að ábyrgt lýðræði sé til. Að þessu leyti myndi það bera með sér sóknarfæri lýðræðisins og landinn gæti fengið örlitla uppreisn æru.

Talandi um óhæfi Seðlabankastjóra, þá er ekki hughreystandi, ef það er rétt sem heyrist á youtube myndbandi á blogginu, að lögfræðingurinn hafi einnig fallið í stærðfræði. Hvað er hann að gera í Seðlabankanum? Að læra 2+2?

Um ástandið sagði davíð fyrr í vikunni: „Það er eitt það alvarlegasta sem þjóðfélag getur lent í og þá verður að grípa til þeirra ráða sem menn hafa,“. Fattar maðurinn bara akkúrat ekkert? Með sínu algleymis aðgerðarleysi er hann húðflúraður sem einn af aðal höfundum að ástandinu og kom okkur í þetta. Þetta er ekkert sem við “lentum í”, heldur var davíð upptekinn að syngja Útrásarsönginn með Björgvin, Árna  M. og Geir H. og þeir sungu svo hátt að þeir heyrðu í engum öðrum. Mikill svanasöngur á þeim bæ. Svo ætla þeir að “redda” hlutunum með sínu algeru óhæfi. Hvað getur Seðlabankastjóri svo sem gert? Jú með því að sitja áfram, í forhertri þrákelkni, þá tekst honum væntanlega að sökkva Íslandi, bókstaflega. Maðurinn er til athlægis erlendis, enginnn vill skipta við hann, því hann þykir vanhæfur með öllu og hann dregur allt annað með sér í hyldýpi eigin þótta.

Hrokinn og hræsnin magnast stjórnarmegin með hverjum deginum:  

davíð sagði á fundi í vikunni að “honum þætti leitt að hafa ekki mætt á mótmæli gegn sjálfum sér”. Manngarmurinn heldur áfram að drita yfir samlanda sína og þegna. Lítilsvirðingin er alger. Húmor er oft góður, en ekki þegar hann er kominn út í geðbilun þar sem einungis trylltur hlátur er eftir.

Annars staðar sagði hann um hækkun stýrivaxta um 50%, þegar hann var spurður hvort hækkunin kæmi sér ekki illa við samfélagið: „Það má vel vera. Það sér nú ekki á svörtu í augnablikinu. Þannig að við tökum því bara vel,“ Tekur því vel? Það sjást ekki óhreinindi á skit? Hverjum heilvita maður treystir þessari ókind?

davíð sver af sér einnig að hann hafi nokkuð í hyggju að segja af sér. Hefur davíð oddson eitthvað að segja um það hvort hann haldi starfinu eður ei? Það væri gaman að einhver gæti svarað því. Mér sýnist í gær að Ingibjörg Sólrún hafi reynt að senda honum uppsagnarbréfið með orðunum “Menn verði að viðurkenna að perningamálastefnan hafi gengið sér til húðar. Ný stefna eigi að byggja á stöðugum gjaldmiðli og faglegri yfirstjórn Seðlabankans.” (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/30/vill_endurskoda_esb_og_sedlabanka/ og hér http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/01/ingibjorg_segir_david_skada_ordsporid/ ).  Ath. FAGLEGRI segir I.S. En það er eins með hana og aðra, það stekkur allt af henni eins og vatn af gæs. En samseka Ingibjörg heldur að það sé einhver lausn að henda sér í skuð annarra (Evrópusambandsliða). Eru þetta allt saman gegnumsýrðir aular? Kann enginn að leysa vandamál? Þarf allaf að finna “einhvern annan” til leysa vandamálin á Alþingi. Það væri nær að vinna verkin sjálf og vinna með aðilum sem hafa farið í gegnum reidda svipu IMU og LÆRA og kynna sér hvað hefur verið gert til að bæta innviði fjárstoðanna. Hún kannski heldur einnig að málin leysist af sjálfu sér með ESB. Hvílík firra. En Ingibjörg lætur þetta út úr sér nú, því hún sér hvert stefnir ef davíð fer ekki út og hún er virkilega smeyk um afleiðingarnar (ekki misskilja, það eru einungis afleiðingar fyrir stjórnarsetu hennar, ekki þjóðarinnar).

N.B.

Robert Z. Aliber, professor emeritus við háskólann í Chicago, segir í grein í Morgunblaðinu í dag, að ríkisstjórn Íslands og seðlabanki séu engu hæfari sem stjórnendur nútíma hagkerfis en þau væru sem stjarnvísindamenn.

„Þau skildu ekki að uppsveifla íslenska hagkerfisins árin 2005 og 2006 byggðist á skuldasöfnun – lán voru tekin til þess að standa í skilum með önnur lán – og nú vita þau ekki hvernig unnt sé að ná jafnvægi aftur eftir að pappírsauðurinn er horfinn. Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld," segir Aliber.

Hann segir einnig, að ríkisstjórnin og seðlabankinn virðist ekki skilja af hverju Bandaríkin og önnur lönd hiki við að lána þeim peninga. Svarið sé einfalt þótt það hljómi ekki vel. Það beri enginn traust til núverandi ríkisstjórnar og seðlabanka; það treysti þeim enginn til þess að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar séu til þess að unnt verði að endurgreiða slík lán.

Þess má geta hér að í Morgunblaðinu 29.10.2008 ropar Seðlabankinn út úr sér eftirfarandi:  "Í gær framlengdi bandaríski seðlabankinn 15 milljarða dala gjaldeyrisskiptasamning við Nýja-Sjáland. Áður hefur bankinn gert gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Evrópu, Englandsbanka, Japansbanka, seðlabanka Ástralíu, Kanada, Sviss, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Íslenski seðlabankinn leitaði í haust eftir slíkum samningi en af því varð ekki."  Og davíð botnar ekki neitt í neinu, hvað þá sjálfum sér. Lok lok og læs. Hver er aulinn?

Það sem liggur fyrir:

Ísland er ekki lýðræði í dag. davíð oddsson, Geir  H. Haarde og Árni M. Mathiesen hafa sannað það undanfarna mánuði, þar sem þeir virðast virðast taka ákvarðanir eftir eigin höfði en ekki á faglegum nótum og hunsa algerlega allri ráðgjöf, sem nú hefur leitt til að koma landanum á kaldan Klaka

Eftirfarandi er grófar útlínur á því sem mætti nota til að endurreisa lýðræði á Íslandi og traust heimsbyggðarinnar. Ísland er fámennt og lýðræði er ábyrgð á eigin hag í samfélaginu, Því verður landslýðurinn að taka þátt í lýðræðinu en akki afsala það sér í hendur sjálfumglaðra eiginhagsmunaseggja. Skortur á ábyrgð og lýðræði undanfarna áratugi þarf að taka á. Lýgin, tvöfeldnin og óheiðarleikinn í íslenskum stjórnmálum undanfarna mánuði má ekki eiga möguleika á að endurtaka sig í framtíðinni.

Það virðist bara vera ein leið til að endurreisa lýðræðið á Íslandi: það er að fagfólk bjóði sig fram eða sé útnefnt í nafni “Samtaka Lýðræðisins”. Samtök Lýðræðisins er ekki flokkur sem slíkur, heldur regnhlífasamtök áhuga-og fagmanna sem "bjóða sig fram" og telja sig geta gert gagn í stjórn Íslands, eða þá aðilar sem hafa verið útnefndir af alþýðunni og þar með skyldaðir að taka þátt í stjórnmálum, Íslandi til góða.

Samtök Lýðræðisins hefur ekki meðlimaskrá heldur einungis frjálsa félagaskrá (einfalda nafnaskrá) sem inniheldur nöfn manna, sem venjulegir Íslendingar hafa tilnefnt sinn “mann”. “Maðurinn” er persóna sem er a.m.k. 33 (eða 35) ára eða eldri, hefur stundað atvinnulíf í a.m.k. 11 síðustu ár á síðasta 15 ára tímabili. 33 (35) ára aldurstakmark er einunigs til að minnka “framboðshópinn” og tryggir að viðkomandi hafi reynslu af samskiptum við hið opinbera og fyrirtæki atvinnulífsins. Í kosningaferlinu mun ekki vera hægt að kjósa Samtök Lýðræðisins sem slíkan, heldur verður að merkja við persónurnar. Það yrði persónukosning.
 
Allir sem uppfylla skilyrðin, fara á lista í forkosningu. Þar sem landsmenn eru flestir með Internetið, þá væri hægt að framkvæma ódýrar online forkosningar, þar sem almenningur gæti jafnvel notað netaðgang bankaútibúa til að taka þátt í slíkri forkosningu. 100 efstu menn á slíkum lista ættu rétt á / skyldaðir að bjóða sig fram í Alþingiskosningum. Með slíku fyrirkomulagi væri landsmönnum betur tryggður breið flóra hæfra frambjóðenda úr öllum þrepum þjóðfélagsstigans. Það er lýðræði.

Á sama tíma á að gera lagabreytingar á þann hátt að þeir sem sinna stjórn Íslands í hvert sinn, verði gerðir ábyrgir fyrir stöðu sinni og þungar refsingar lagðar á stjórnbrot. Refsilöggjöfin ætti að vera veruleg að þau veiti ábyrgðaraðilum aðhald. Það myndi tryggja að allar umræður væru opnari, þar sem flestir myndu koma að ákvarðanatöku á mikilvægum málefnum, jafnvel þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er áhugavert að sjá að t.d. í Bretlandi þurfa ráðherrar að sitja undir fyrirspurn nefnda á opinberum vettvangi. Þeir eru spurðir í þaula og þurfa að svara með rökum allar hugsanlegar áætlanir og ákvarðanatökur á þeirra vegum. (Ég sæi fyrir mér Árna M. reyna að svara bara einni spurningu á heiðarlegan hátt undir slíkum kringumstæðum, hvað þá Davíð).

Ráðherrar ættu að koma úr atvinnulífinu og vera ráðnir ópólitískt. Heilbrigðismálaráðherra ætti að koma e.t.v. úr heilbrigðisgeiranum, sjávarútvegsráðherrar úr sjávarútvegsgeiranum o.s.frv. án þess að það væri endilega skilyrði, en reynsla á auðvitað að vega þungt þegar kemur að ábyrgð.

Málþóf á þingi (vanvirðing við alla landsmenn) og aðrar flokkspólitískar þrætur ættu ekki rétt á sér og því yrði skilvirkni stjórnarinnar með afbrigðum góð. Með metnaði, framkvæmdahyggju og eljusemi, gætu duglegir Íslendingar komið Íslandi í fremstu röð á skömmum tíma. Allt saman undir nafni lýðræðisríkisins Ísland.

Uppbygging, lýðræði og skynsemi um ábyrga framtíð væri flokkforystan, ekki persónur. Það mundi tryggja áframhaldandi viðhald og uppbyggingu lýðræðisins á Íslandi. Það gæti verið að “ráðgjafar” kæmu “meðlimum Samtaka Lýðræðisins” til aðstoðar og verið þeim innan handar og mætti nefna að af mörgum slíkum væri að taka eins og Jón Baldvin, Þorvaldur Gylfason, Ragnar Önundarson og aðrir viti bornir menn og konur.

Það þarf engan sérfræðing til að fara á þing, einungis fólk sem vill og kann að vinna vel.

Það er óhugnalegt að horfa upp á hvernig núverandi stjórnarmenn fara með landlýðinn eins og tuskur, námsmenn að hrökklast úr námi vegna gjaldeyrisskorts og ráðamenn ljúga upp hver á annan. En Alþingismenn geta alltaf vísað í Stjórnarskrána sem segir m.a.:

36. gr. Alþingi er friðheilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi

49. gr. [Meðan Alþingi er að störfum má ekki setja neinn alþingismann í gæsluvarðhald eða höfða mál á móti honum án samþykkis þingsins nema hann sé staðinn að glæp.
Enginn alþingismaður verður krafinn reikningsskapar utan þings fyrir það sem hann hefur sagt í þinginu nema Alþingi leyfi.]1)
   1)L. 56/1991, 18. gr.
 

-- Hér þarf að breyta ábyrgð. Þessi klásúla verndar og leyfir þingmönnum að steypa, ljúga og afvegaleiða og tilheyrir hvergi í raunverulegu skilvirku lýðræði. En þetta á væntanlega ekki við stöðu Seðlabankastjóra.

 

Sem flestir ættu að fara inn á kjosa.is og vera með til að virkja raunverulegt lýðræði. Við förum á byrjunarreit, en reynsla, dugnaður og raunverulegt lýðræði munu skila ávöxtun sinni margfalt til landsmanna á mikið skemmri tíma. Það er allt hægt!

Það er fleira að finna í Stjórnarskránni:

24. gr. Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, [áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið],1) enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum]1) eftir, að það var rofið. [Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.]1)
   
1)L. 56/1991, 5. gr.

11. gr. Forseti lýðveldisins er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Svo er og um þá, er störfum hans gegna.

-- Ef Ólafi Ragnari Grímssyni yrði afhent afrit af söfnun kjosa.is og hann myndi í kjölfarið leysa upp Alþingi, þá sannar hann það að hann starfar í þágu þjóðarinnar.

 40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.

-- Hérna vantar inn auðlindir Íslands og hægt að afgreiða það mál fljótt með stjórnarskrárbreytingu.

Nýju Bankarnir, Nýju föt keisarans og núna nefndi einhver Nýja Ísland. Það er svo sem ágætt, en viðkomandi bætti við:

"Á Nýja Íslandi þyrfti allt að vera gegnsætt. Minnsta vafa þyrfti að eyða strax á svipaðan hátt og deildarstjóri hjá BBC gerði útaf brandara. Hér eru tveir menn skipaðir í rannsóknarstörf þrátt fyrir augljóst vanhæfi. Kona sem týnir hlutabréfunum sínum stýrir banka. Maður innviklaður í IceSlave er háttsettur í öðrum. Árni Johnsen situr á þingi og ekki hvarflar að Davíð að standa upp úr stólnum sínum. Og hann kemst upp með það."

En kemst Seðlabankastjóri upp með það? Undanfarin framkoma og frammistaða Seðlabankastjóra er ekki liðin í alvöru lýðræði.

Allt er hægt! Ráðamenn hafa spilað botninn algerlega úr brókunum og rústað Íslandi í leiðinni og mannorði þess. En það jákvæða við það er, að það varð til þess að lýðræði varð að veruleika á Íslandi.

Það er óhugnanlegt að hugsa til þess að ef þing verður ekki rofið, þá fái sömu himpigimpi og komu okkur í þessa stöðu, frjálsar hendur að sóa lánsfénu frá IMF og öðrum á sama hátt og hingað til. Það má bara ekki gerast, því flokkahagsmunapólitíkin mun draga krísuna á langinn. Enginn hefur efni á því.

 

Ég vil benda á eftirfarandi blogg:

http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/
http://eyjan.is/goto/peturty/

Blogg Láru Hönnu hefur að geyma miklar heimildir yfir það sem gengið hefur á undanfarnar vikur. Alveg frábært hjá henni. En þar er einnig að finna "lög" frægra rappara á borð við Geir með slagarann “Well kept secret” og davíð súper rappari með slagarann "Útrásarsönginn". Ég vona að spennuþáttaserían Geir Die Haard muni selja vel í útlandinu og skaffi vænan búnka af gjaldeyri, sem okkur svo sárlega vantar.

Pétur Tyrfingsson á eyjan.is er einnig með marga mjög góða og áhugaverða pistla í þessu samhengi.

Lesendur þessa bloggs ættu að skrá hjá sér aðila, sem þeir treysta betur til að vera í stjórn en núverandi persónum á Alþingi. Það er ekki komin rétti tíminn í augnablikinu til að skrá áhugaverða aðila, en við skulum vona að það sé ekki langt í slíka skráningu hér eða annars staðar. Alþingi þrífst í dag á eðli Íslendinga að vera óskipulagðir, en það mun að sjálfsögðu breytast þegar fólk áttar sig á hvað lýðræði er í raun.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband